|
|
 |
 |
 |
|
|
Sjúkraþjálfarinn ehf hóf rekstur 1984. Fyrirtækið hefur alla tíð verið staðsett í Hafnarfirði. Í fyrstu fór starfsemin fram í húsi Dvergs að Brekkugötu 2 en fluttist skömmu síðar að Dalshrauni 15. Árið 1996 flutti fyrirtækið í núverandi húsnæði að Strandgötu 75, Drafnarhúsið. Húsnæðið var stækkað umtalsvert árið 2005 samhliða gagngerum endurbótum.
Sjúkraþjálfun er meginstarfsemi fyrirtækisins en einnig eru starfræktir endurhæfingarhópar fyrir hjarta- og lungnasjúklinga. Jafnhliða sjúkraþjálfuninni er rekin heilsurækt þar sem m.a. er boðið upp á hópleikfimi og æfingar í tækjasal undir handleiðslu sjúkraþjálfara.
Fyrirtækið hefur vaxið samhliða örri stækkun Hafnarfjarðarbæjar. Frá upphafi höfum við kappkostað að bjóða upp á sjúkraþjálfun á eins breiðum grundvelli og kostur er. Við höfum lagt áherslu á að þjóna eftir bestu getu öllum í Hafnarfirði og nágrannasveitafélögum sem þurfa á sjúkraþjálfun að halda. Þannig starfa hjá fyrirtækinu sjúkraþjálfarar sem sérhæft hafa sig og sérmenntað t.d. í sjúkraþjálfun barna, meðhöndlun stoðkerfiseinkenna og nálastungum.
|
 |
|